Thursday, November 22, 2012

fleiri myndir fyrir Katý :)

kríuna gerðum við Eybjörg í fyrra

glös í jólagjafirnar

sameiginlegt tilraunaverkefni komið af stað (en ekki klárað)

og ljósaverkefnið áður en límiðaskerinn var kominn í gagnið aftur.

Monday, October 29, 2012

fleira sniðgt

vorum í smá sýnikennslu á google sketch up.  geðveikt forrit,

Tuesday, October 23, 2012

mörgum dögum síðar

Jæja þá er komið að því, ég er loksins búin að læra að setja myndirnar inn:) svo hér koma þær í réttri verkefnaröð.
stjarnan var fyrsta verkefnið, bæði rastering og skurður og líka hand teikning (andlitið)

þetta er litla smelluverkefnið, þarna eru hundurinn og kisan á stalli, myndin kanski ekkert afskaplega góð.  en það er bæði skurður og rastering og mikil kúnst að læra að setja götin í plötuna í  sömu stærð og pinnana á hund/kisu.

svo gerðum við límmiða, límdum hann á grind eins og fyrir pappírsgerð og svo var það stilt af við efnið og fatalitur (svona svakaflottur þykkur) smurður yfir.  svo þegar það er þurt þá er það þvotthelt og alshelt.
 

og svo stóra smelluverkefnið, þetta er ljóskúla, hringir uppi og niðri, annar með gati fyrir snúru og perustæði, hinn ógataður.  komst að því að það er mikið trix að mæla vel plexíið áður en prentað er út upp á það að það brotnar svo auðveldlega á samskeitum ef það munar bara agnarlitlu,  í mínu tilfelli munaði 0,05 mm og það voru nokkrir búnir að brotna áður en ég tók eftir því...
en hérna sýndi Katí okkur snildina með kóperingu á hlutum í hring, eða eiginlega að dúplikera hluti í hring.   þarna var hugmyndin svo að hægt væri að hafa fleigana og botn og topp í mismunandi litum.  ég átti þessar plötur bara við hendina og þess vegna er ljósið með matta fleiga en glærann botn og topp.
svo erum við að vinna í Lógó verkefni, að prófa að vinna með önnur efni en við höfum gert, svo er rastering í gler og ekki má gleyma ljósaverkefninu sem ég vann í pappa en er bara ekki alveg búin að klára. myndir af því næst.. .tjaó Eva

Wednesday, October 3, 2012

dagur 3
hefur verið mjög langur... mér hefur ekki tekist að rífa tölvugreyjið af krökkunum til að koma inn neinu bloggi.  en síðan síðast erum við búnar að læra heilmikið.  læra að líma myndir rétt á krukkur (tókst ekki) læra að gera myndirnar þannig að hluti þeirra skerist út en hluti ekki (path og svo cut path) tókst en villdi samt ekki vera eins og ég hafði gert mér í hugalund.  en svo fékk ég hjálp svo það verður ekkert í hættu þegar ég kem heim.  ég byrjaði svo á Stóra smelluverkefninu, og ætla að prófa að skera það út næst, vvvvvvvvoooðððða flott hjá mér ( með mikilli hjálp hjá Unu snillingi og Katý úbersnillingi).  svo vonandi verður mér bara sýnt á eftir hvernig í andskhelvdjöv ég get sett inn myndir af þessu dóti öllu saman.

Thursday, September 27, 2012

dagur 3
við gerðum mjög krúttlega litla mynd úr plexy með 2 samsetningum.  ég sé að maður þarf að passa þykktina á plötunni mjög vel svo ekki "gjökti".

Thursday, September 20, 2012

dagur 2

vorum að læra að gera límmiða í gær, furðulegt hvað maður er fljótur að gleyma því hvernig á að gera þá....

Wednesday, September 19, 2012

dagur eitt

dagur eitt... kæri jóli
búin að gera fyrsta verkefnið í FBulas Labulas, set inn mynd um leið og eitthvað krakkanna nennir að hjálpa mér :)